Jæja, það er um að gera að maður láti heyra í sér á þessu bloggi. Það er helst að frétta af mér að ég nenni engan veginn að byrja á BA-ritgerðinni minni, en ég hafði hugsað mér að útskrifast í vor. Ég eyði þess vegna bara tímanum í að vinna á RÚV og gera ekkert af viti. Ég þóttist vera búin að ákveða ritgerðarefni, sendi kennaranum mínum tölvupóst og hann svaraði bara eitthvað út í hött þannig að ég er pretty much lost í augnablikinu.
Annars er verið að plana sumarfrí á fullu þessa dagana. Í fyrsta skipti síðan á Ibiza ætla ég í alvöru sumarfrí, liggja á strönd og hafa það gott í 2 vikur. Stefnan er tekin á Kenýa í byrjun júní og svo ætlum við að vera nokkra daga í London áður. Þetta er rosalegur pakki, það þarf að fara í grilljón sprautur og bólusetningar svo að maður beri nú alveg örugglega ekki heim með sér ebóla-veiru, malaríu eða kóleru. Ég er orðin skíthrædd því ég er með svo mikla sprautufóbíu. En ef maður ætlar að skoða framandi slóðir þá verður maður víst að láta sig hafa þetta.
En hvernig er það annars með þetta blogg? Er það algjörlega dautt? Kíkir kannski enginn á það? Ég fer að halda að það þurfi bara bráðum að halda gott C-bekkjar partý til að hrista upp í mannskapnum og hita upp fyrir 5 ára útskriftarammælið okkar í vor... já, það eru 5 ár síðan við útskrifuðumst!!! Men hvað tíminn líður hratt. Einhver sem er til í að halda partý?
Sunna
Enginn hefur lagt orð í belg!