Jæja er ekki kominn tími til að maður skrifi hérna e-n tímann!!!
Ég er stödd hérna á Tálknafirði í sveitasælunni og fíla mig alveg rosalega vel. Við búum í mjög góðri (skilst að hún sé lítil á tálknfirskan mælikvarða) þriggja herbergja kennaraíbúð, sem við leigjum fyrir sama og ekkert. Albert er að vinna í Þórsberg sem er fiskvinnslufyrirtæki hérna sem fjármálastjóri. Það er alveg rosalega gaman að kenna, ég er með umsjón í 5 og 6 bekk og enskuna í 8 9 og 10 bekk. Ég er alveg rosalega sátt við allt hérna og það taka manni allir rosalega vel, þannig þetta er bara gaman. Það er samt soldið skrýtið að vera svona langt frá öllu og öllum, og hitta aldrei NEINN sem maður þekkir, en það venst.
En ég er að sjálfsögðu að koma í menninguna um helgina til að mæta í aðalpartýið!!! ;)
stuðkveðja
Jóhanna
Enginn hefur lagt orð í belg!