Halló, halló!
Mín segir bara allt fínt. Er bara í vinnunni og svona akkúrat núna. Alltaf að vinna á sama stað, þ.e. í Innanlandsdeild Úrval Útsýnar. Að selja útlendingum ferðir til Íslands og svoleiðis fínerí. Annars ætla ég að skella mér í HR í haust, fara í diplómanám sem heitir Markaðsfræði og alþjóðaviðskipti. Þetta er nám með vinnu, svo að það verður nóg að gera hjá mér í vetur í 100% vinnu og námi. Er búin að fá mér ferðatölvu, þannig að núna er pæjan bara reddý!
Nú er komið ár síðan ég og Jói keyptum okkur íbúð. Unum við okkur bara vel á heimaslóðunum í Árbænum. Rústuðum við algjörlega íbúðinni, m.a. brutum niður vegg og byggðum nýjan. Það eina sem eftir er upprunalegt í íbúðinni er baðherbergið. Þaðan er líka stutt í útivistarparadísina Elliðaárdalinn, maður er sem sagt orðin algjör kerling, komin í 2 gönguhópa. Þannig ef þetta heldur svona áfram þá skuluð þið ekki láta ykkur bregða þó ef þið mætið mér og Jóa í eins jogginggöllum, rauðum og bláum í Heiðmörkinni!
Það verður víst ekkert farið út þetta sumarið. Ferðaðist aðeins um Ísland í staðinn og var það bara rosa fínt. Ástrali sem við kynntumst í Suður Ameríku kom í júní að heimsækja okkur, og er hér enn! Hann er núna komin með vinnu, fór til Vestmannaeyja á Þjóðhátíð, það er sem sagt bara allur pakkinn! Þannig að ef þið rekist á einhvern fullan Ástrala með Guinness í hönd, þá er það "my Australian mate Darren"! Held að hann hefði ekkert á móti því að setjast að á Íslandi, þannig að ef einhver ykkar sem er á lausu langar til að kynnast myndarlegum Ástrala, að vísu heldur drykkfeldum, þá endilega sendið mér póst og ég skal koma á deiti.
Jæja, bið að heilsa í bili. Við sjáumst kannski á röltinu...
Túrilú!
Hrönn
Hrönn
Enginn hefur lagt orð í belg!