Hæ stelpur!

Ætla að leggja mitt af mörkum og blogga aðeins, hef svona smá tíma í vinnunni heheheheh..

en já, af mér er ágætt að frétta, reyndar ekkert svosum brand new. Nema kannski það að ég er líklegast að fara út til Englands í skóla, í einhvers konar leikhúsfræði, European Theatre Arts. Ég vona bara að það verði gaman. Skólinn, Rose Bruford, er staddur í Sidcup, Kent, sem er hálftíma fyrir utan London. Það er nú bara ágætt, maður sleppur þá við svimandi háa leigu! :) Stefnan er sett á að stinga af svona í byrjun september! Ég held að þetta verði þrusu gaman, gaman að prófa eitthvað nýtt í öðru landi. Við erum veit ég 5 Íslendingar að fara í þennan skóla á fyrsta ár í hinar ýmsu námsgreinar og fyrir eru allavega 3. Þar á meðal vinkona mín, Anna Brynja, sem útskrifaðist með okkur.. verður gott að hafa hana þarna til að leiða mann fyrstu sporin :)

Annars voða lítið nýtt, ferðin til Finnlands og Danmerkur var pjúra snilld, við Arnbjörg höfðum það náðugt í Köben og lágum í sólinni útí Kongens Have og drukkum bjór aaahhhh.. Baunirnar kunna víst að lifa lífinu :) Svo í Finnlandi var bara gaman, við drukkum þvííkt magn af OLUT og átum mikið af JUUSTOHAMPURILAINEN á Makkanum hehehehheeh.. og ekki skemmdi að kórinn okkar vann til tvennra gullverðlauna, urðum í 2.sæti ásamt 2 öðrum kórum og efsti kvennakórinn.. 60 kórar að keppa! þannig að við vorum heví sáttar!

Hélt uppá ammlið mitt um daginn, þið getið kíkt á myndir á www.karaokequeens.blogspot.com, það er blogg sem er í vinnslu fyrir England heheh.. farið bara inná myndir og þaðan í eighties partý híhí..

hef nú ekki mikið meira að segja í bili :)

Lovísa


Leggja orð í belg
Enginn hefur lagt orð í belg!