Hey skvísur!

Ég sé að það er lítið verið að blogga þessa dagana. Eru allar í sólbaði eða hvað er eiginlega að gerast, ég hélt að við stæðum undir nafni sem C-bekkurinn ógurlegi, kjaftakellingar með meiru.

En hvað um það. Ég kíkti á opið hús í MR um daginn, bara svona upp á grínið. Þurfti líka að sýna kallinum hvernig herlegheitin líta út enda er hann búinn að fá að heyra ófáar sögurnar. Rosa gaman að hitta kennarana og labba um gangana, rifjuðust óneitanlega upp nokkrar minningar. Svo er búið að gera voða fínt, mála anddyrið í gamla skóla, komin splunkuný tæki í Þrælakistuna og svo er Elísabetarhúsið svaka flott.

Annars er ég bara að vinna á Mogganum í sumar, svaka stuð eða þannig. Ekkert gaman að hanga inni þegar það er sunshine lolly úti, en maður lætur sig hafa það enda mikil fátækt í gangi eftir veturinn. Býst ekki við að fara til útlanda í sumar enda erum við á fullu að leita að íbúð svo fjárhagurinn leyfir víst engan slíkan munað. Maður verður þá kannski duglegri að ferðast innanlands í staðinn.

Jæja skvísur, verið nú duglegar að skrifa.

Sólarkveðja, Rainy

Ragnhildur


Leggja orð í belg
Enginn hefur lagt orð í belg!