Þið eigið eftir að finna einhverja flotta vinnu í sumar, stelpur! Ég trúi á ykkur í þessu máli!!!:)
Sem betur fer er ég komin með vinnu í Reykjavík í sumar. Það er mikill léttir! Þó mér finnist gaman að vinna í Leifstöð þá er samt gott að losna við að vera á vöktum og að keyra á milli Kef og Rek... Húff! Ég verð að vinna á leikskólanum Jörfa í sumar, þar sem ég er reyndar að vinna núna og er með einhverfan strák í atferlismótun:) Svo vona ég að ég komist eitthvað út í sumar, það væri ÆÆÆÆÐI að geta heimsótt Hófí og Höllu, en ég veit ekki hvernig það fer:S Ekki mikill peningur í að vinna á leikskóla:S
Endilega segið frá sumrinu ykkar:) Ætliði að fara eitthvað út í sumar og sonna??:D
Bára

Enginn hefur lagt orð í belg!