Tilkynningarskyldan

Hæ hæ!

Þótt það sé voðalega lítið líf í þessu bloggi okkar þá ætla ég nú samt að koma með eina tilkynningu, svona just in case ef einhver skyldi lesa þetta.

Ég eignaðist lítinn herramann á síðasta þriðjudag, 27. september klukkan 8.15.  Strákurinn var 14,5 merkur og 51 sentimetri og að sjálfsögðu allra barna fallegastur!  Foreldrarnir eru að rifna úr monti.  Pjakkurinn hefur fengið nafnið Valur og dafnar mjög vel á heimili sínu - alveg við KR-völlinn.

Endilega látið í ykkur heyra hérna á blogginu.  Kveðja,

Sunna


Leggja orð í belg
Enginn hefur lagt orð í belg!