5. jan. 2006 | Reunion á laugardag

Ég vildi bara óska ykkur öllum góðrar skemmtunar á laugardaginn.  Það eru tár á koddanum mínum yfir að komast ekki.  Ég veit að það verður rokna stuð og stemmning ef ég þekki gamla bekkinn minn rétt...jíííhaaa
 
Stuðkveðjur frá Guildford,
Rainy
 
www.ragganagli.blogspot.com 

Ragnhildur

Leggja orð í belg
Enginn hefur lagt orð í belg!


5. okt. 2005 | Gaman gaman :)

Til hamingju með litla prinsinn! Megið þið hafa það gott, litla fjölskyldan hjá KR-vellinum ;)
Sigurrós

Leggja orð í belg
Enginn hefur lagt orð í belg!


1. okt. 2005 | Tilkynningarskyldan

Hæ hæ!

Þótt það sé voðalega lítið líf í þessu bloggi okkar þá ætla ég nú samt að koma með eina tilkynningu, svona just in case ef einhver skyldi lesa þetta.

Ég eignaðist lítinn herramann á síðasta þriðjudag, 27. september klukkan 8.15.  Strákurinn var 14,5 merkur og 51 sentimetri og að sjálfsögðu allra barna fallegastur!  Foreldrarnir eru að rifna úr monti.  Pjakkurinn hefur fengið nafnið Valur og dafnar mjög vel á heimili sínu - alveg við KR-völlinn.

Endilega látið í ykkur heyra hérna á blogginu.  Kveðja,


Sunna

Leggja orð í belg
Enginn hefur lagt orð í belg!


23. júlí 2005 | Herra og frú

Kem hér með stutta bloggfærslu til að sinna tilkynningaskyldunni og segja nýjustu fréttir. Við Jói létum pússa okkur saman þann 9. júlí síðastliðinn svo að nú er ég víst orðin "frú Sigurrós" - hljómar alveg ósköp virðulega, er það ekki? ;) Þær sem hafa áhuga geta kíkt á brúðkaupssíðuna og séð myndir.

Eru svo ekki einhverjar fleiri sem vilja segja okkur einhverjar fréttir? :)


Sigurrós

Leggja orð í belg
Enginn hefur lagt orð í belg!


6. feb. 2005 | Hæ hæ hæ

Bara smá tilkynningarskylda hjá mér........ég er ólétt og er sett á 21.mars þannig að það styttist óðum í þetta. Ég er allavega orðin ógeð spennt og pínu kvíðin en hlakka samt aðallega til ;) Við vitum ekki hvort kynið þetta er, en það kemur nú ljós soon enough. Allavega, vonandi fara fleiri að blogga svo að þetta detti ekki alveg niður hjá okkur :D Bæ í bili, Elva.
Elva

Leggja orð í belg
Enginn hefur lagt orð í belg!